Gjafi 7069/Kjeld: Hundruð barna í hættu á að fá krabbamein

Summarise with VIRAT
Authors: Urður Örlygsdóttir
Cited by: 0

Summary

No summary yet. VIRAT can read this paper and write a plain-language summary of its aim, methods, key findings and limitations.

Summarise with VIRAT Free to try with your Science Catalogs account.

Abstract

Í þessari greinargerð er farið yfir vinnuferlið að baki sjónvarpsþætti sem birtist í Kastljósi á RÚV. Þátturinn fjallar um danskan sæðisgjafa sem gaf sæði í Evrópska sæðisbankann í Danmörku árið 2005. Sæði gjafans, sem er þekktur undir dulnefninu Kjeld og númerinu 7069, var notað til að geta fleiri en 200 börn á 17 ára tímabili, eða þar til hann var tekinn úr umferð eftir að í ljós kom að hann bar með sér sjaldgæfa og alvarlega genastökkbreytingu sem veldur krabbameini. Þátturinn er byggður á nokkra mánaða rannsóknarvinnu blaðamanna frá 14 Evrópulöndum sem unnu saman við að kortleggja fjölda barna sem getin voru með sæði mannsins í heiminum. Í greinargerðinni er farið yfir hvernig málið rataði á mitt borð og umfang þess á Íslandi. Þá er fræðileg umfjöllun um stöðu rannsóknarblaðamennsku og blaðamennsku yfir landamæri (e. cross-border journalism). Einnig er farið yfir ferlið, frá því málið barst í mínar hendur og þar til lokaútkoman var sýnd í sjónvarpi. Markmið þáttarins var að varpa ljósi á skort á yfirsýn um kynfrumugjafa yfir landamæri og sýna hvaða afleiðingar ofnotkun á kynfrumum getur haft. Í niðurstöðum greinargerðarinnar er farið yfir þessi mál. Umfjöllunin var drifin áfram af gögnum sem lágu fyrir um tengsl málsins við Ísland auk þess sem talað var við sérfræðinga á sviði frjósemi, erfðafræði og krabbameinslækninga. Sjónvarpið var notað til að miðla sögu sæðisgjafans myndrænt og með hljóði til að ná fram alvarleika málsins og tilfinningum þeirra sem áttu í hlut.

Fields of Study & Subjects

Testicular diseases and treatments Global Cancer Incidence and Screening Legal and Social Justice Studies

Publication details

Journal / source
Skemman
Publication date
1 March 2026
Language
IS
Document type
Thesis